Frumvarp um farþegagjald og gistináttagjald

Markmið laga þessara er að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Jafnframt að afla tekna til þess að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins.

Frumvarpið má finna hér.

Posted in Uncategorized | Skrá ummæli

Frumvarp um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða og má finna það hér

Frumvarpið er lagt fram af Iðnaðarráðherra og er, eins og segir í texta frumvarpsins ætlað að,   skal með stofnun Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða stuðlað að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

Posted in Uncategorized | Skrá ummæli

Þingsályktunartillaga – Ferðamálaáætlun 2011-2020

Fyrir Alþingi liggur nú þingsályktun um Ferðamálaáætlun 2011-2020.

Til að lesa þingsályktunina má smella hér

Posted in Uncategorized | Skrá ummæli

Fundagerðir Ferðamálaráðs

Fundargerðir Ferðamálaráðs eru birtar á vef Ferðamálastofu og má finna hér

Posted in Uncategorized | Skrá ummæli

Ferðamálaáætlun 2011-2020 – DRÖG

Drög að ferðamálaáætlun 2011-2020 liggja nú frammi til umsagnar.  Ferðamálaáætlun er í vinnslu og stefnt er að verklokum í október.  Óskað er eftir athugasemdum og ábendingum við þau gögn sem eru meðfylgjandi og sérstaklega tillögum að aðgerðum og leiðum að meginmarkmiðum stefnunnar.

Meginmarkmið eru:

  • Að viðhalda sérstöðu Íslands með markvissri og öflugri uppbyggingu áfangastaða
  • Að auka gæði, fagmennsku og umhverfisvitund ferðaþjónustunnar
  • Að stuðla að aukinni arðsemi og virðingu atvinnugreinarinnar
  • Að lengja ferðamannatímabilið, minnka árstíðasveiflu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið.

Nýrri stefnu í ferðamálum er ætlað að leysa af hólmi þingsályktun um ferðamál fyrir tímabilið 2006-2015 sem samþykkt var á vordögum 2005. Síðan sú ályktun var samþykkt hafa orðið miklar breytingar í ferðaþjónustunni; ný lög um skipan ferðamála tóku gildi 1. janúar 2006 en með þeim fékk Ferðamálastofa skýrt stjórnsýsluhlutverk, málaflokkurinn fluttist í iðnaðarráðuneytið 1. jan. 2008 og jókst þá samspil greinarinnar við stofnanir og stoðkerfi þess ráðuneytis, ferðaþjónustureikningar Hagstofunnar voru gefnir út í fyrsta sinn 10. október 2008 og Íslandsstofa tók til starfa 1. júlí 2010 sem tók við markaðshlutverki Ferðamálastofu á erlendum vettvangi.

Stýrihópur var myndaður í apríl 2010 og stefnt er að því að hann ljúki störfum í nóvember 2010. Ferðamálaráð er bakland stýrihópsins. Í stýrihópnum eru Ólöf Ýrr Atladóttir, formaður, Helga Haraldsdóttir, Erna Hauksdóttir og Svanhildur Konráðsdóttir. Starfsmaður stýrihópsins er Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóri á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Stefnt er að verklokum við ferðamálaáætlun í lok október og eru þeir sem koma vilja ábendingum á framfæri vinsamlega beðnir að senda þær á netfangið sirry@nmi.is fyrir 10. október nk.

Posted in Framtíðarsýn | Skrá ummæli

Íslensk ferðaþjónusta – framtíðarsýn

Skýrslan Íslensk ferðaþjónusta – Framtíðarsýn var gefin út árið 2003.  Í skýrslunni er lögð fram framtíðarsýn til ársins 2030.  Hefur verið unnið samkvæmt þessari sýn?  Höfum við náð einhverjum markmiðum sem sett eru fram í þessari skýrslu nú 7 árum seinna?
Náttúra, menning og fagmennska eru þar skilgreindar sem auðlindir íslenskrar ferðaþjónustu.
Áherslusvið eru samkvæmt skýrslunni: ímynd Íslands, umhverfismál, gæða- og öryggismál, menntamál, samgöngumál, byggðamál, skipulag ferðamála, rekstrarumhverfi og markaðsmál.
51 aðgerð er tiltekin til að ferðaþjónustan vaxi í sátt við íslenskt umhverfi og skili þjóðarbúin þeim árangri sem vænst er á næstu árum.  Svo nokkrar aðgerðir séu nefndar:
Ímynd:
  • Samræmdar aðgerðir sem veita yfirburða samkeppnisstöðu
  • Skýr stjórnun og yfirsýn yfir flæði og dreifingu ferðamanna um landið
  • Vöruþróunarverkefni í greininni sem tengjast ímynd landsins
Umhverfismál:
  • Reglur um skipulag á mannvirkjum og tækjum í ferðaþjónustu
  • Umhverfisvottun í allri ferðaþjónustu
  • Gjaldtaka í þjóðgörðum og öðrum fjölsóttum ferðamannastöðum
Öryggis og gæðamál:
  • Eftirlit með kröfum til öryggisþátta
  • Gæðaflokkun í ferðaþjónustu
  • Reglulegar gæðakannanir og skýr farvegur fyrir kvartanir
  • Skýr upplýsingagjöf til ferðamanna
Menntun:

  • Aukin grunnfræðsla um mikilvægi starfa í ferðaþjónustu
  • Áhersla á gæða og öryggismál í menntun og fræðslu í ferðaþjónustu
  • Heildstæð menntunarstefna og samhæfing námsframboðs

Samgöngur:

  • Öflugar og reglubundnar samgöngur til og frá landinu
  • Óhefðbundin umferð um ósnortin víðerni verður að haldast möguleg
  • Samkeppnisstaða svæða bætt með öflugu samgöngukerfi

Byggðamál:
  • Nýsköpun og uppbygging sem tengist sérstöðu svæða og víðtækum áhuga ferðafólks
  • Fleiri staðir bjóða þjónustu yfir lengri tíma án tillits til árstíða
  • Greinin búi við starfsumhverfi sem laði að hæft starfsfólk og skili góðri arðsemi
  • Varðveisla menningarþátta og sérstæðra atvinnuhátta
Skipulag:
  • Varanleg framlög ríkisins til almennrar landkynningar
  • Skýr verkaskipting stjórnsýslu og ferðaþjónustu í markaðsstarfi
  • Ábyrg afstaða til umhverfismála og gæða þjónustunnar sem boðin er
  • Aukin áhrif greinarinnar í eigin markaðssetningu
Rekstrarumhverfi
  • Aðgangur að fjármagni til vöruþróunar og nýsköpunar
  • Umhverfi sem hvetji til nýsköpunar og uppbyggingar
  • Þjónusta yfir lengra tímabil og jafnari árstíðasveiflur
Markaðssetning:
  • Kostir internetsins nýttir til kynningar og samskipta
  • Aðstaða ferðaþjónustunnar samkeppnisfær við helstu samkeppnislönd
  • Stöðugt kynningar- og markaðsstarf sem eykur vitund og viðheldur áhuga
Er íslensk ferðaþjónusta á réttri leið miðað við þá framtíðarsýn sem þarna er sett fram?
Posted in Framtíðarsýn | 2 Ummæli

Gagnasöfnun fyrir stefnumótun í ferðaþjónustu

Upplýsingaöflun og samráð vegna stefnumótunar í ferðaþjónustu er að hefjast.  Upplýsingum verður aflað með viðtölum við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, stoðkerfi ferðaþjónustunnar og greinum sem tengjast ferðaþjónustu á einn eða annan hátt.

Hugsunin er að hafa spurningarnar opnar til að fá fram skoðanir fólks á helstu þáttum í ferðaþjónustunni.    Þannig má hugsanlega ná fram skoðunum og framtíðarsýn fólks  í ferðaþjónustu.   Spurningarnar varða núverandi stöðu, aðgerðir stoðkerfisins,  yfirvalda og leiðir til að lengja ferðamannatímans og stuðla að nýsköpun svo nokkuð sé nefnt.

Markmið viðtalanna er að ná fram þeim 4-5 áhersluatriðum sem fólki finnast brýnt að farið verði í strax og einnig sýn og gildi ferðaþjónustunnar til lengri tíma.

Mikilvægt er að fá viðhorf breiðs hóps.  Listi yfir þá sem tekin eru viðtöl við verður settur á síðuna og eru áhugasamir hvattir til að koma með ábendingar og óska eftir að fá að koma sínum sjónarmiðum að við Sigríði Ó. Kristjánsdóttur starfsmann stýrihópsins í netfangið sirry@nmi.is.

Posted in Viðtöl og rýnihópar | 3 Ummæli

Ferðamálaáætlun 2006-2015

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ákvað að láta vinna sérstaka ferðamálaáætlun fyrir tímabilið 2006-2015 sem lögð yrði fyrir alþingi. Í byrjun apríl var samþykkt þingsályktunartillaga um ferðamál, byggð á áætluninni. Í áætluninni er sett fram forgangsröðun og stefnumótun fyrir málaflokkinn í heild, hagkvæmari notkun fjármagns og mannafla og meiri áherslu á samstarf og samspil milli aðila ferðaþjónustu í landinu, stofnana samgönguráðuneytisins, ráðuneytisins sjálfs og annarra ráðuneyta.

Ferðamálastefnumótun 2006-2015

Posted in Uncategorized | Skrá ummæli

Dönsk stefnumótun

Stefnumótun í danskri ferðaþjónustu var gerð árið 2009 og er áhugavert að skoða hana.

Danska stefnumótunin – pdf skjal.

Ýtið hér til að skoða vef.

Posted in Skýrslur og tenglar | Skrá ummæli