Ferðamálaáætlun 2011-2020 – DRÖG

Drög að ferðamálaáætlun 2011-2020 liggja nú frammi til umsagnar.  Ferðamálaáætlun er í vinnslu og stefnt er að verklokum í október.  Óskað er eftir athugasemdum og ábendingum við þau gögn sem eru meðfylgjandi og sérstaklega tillögum að aðgerðum og leiðum að meginmarkmiðum stefnunnar.

Meginmarkmið eru:

  • Að viðhalda sérstöðu Íslands með markvissri og öflugri uppbyggingu áfangastaða
  • Að auka gæði, fagmennsku og umhverfisvitund ferðaþjónustunnar
  • Að stuðla að aukinni arðsemi og virðingu atvinnugreinarinnar
  • Að lengja ferðamannatímabilið, minnka árstíðasveiflu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið.

Nýrri stefnu í ferðamálum er ætlað að leysa af hólmi þingsályktun um ferðamál fyrir tímabilið 2006-2015 sem samþykkt var á vordögum 2005. Síðan sú ályktun var samþykkt hafa orðið miklar breytingar í ferðaþjónustunni; ný lög um skipan ferðamála tóku gildi 1. janúar 2006 en með þeim fékk Ferðamálastofa skýrt stjórnsýsluhlutverk, málaflokkurinn fluttist í iðnaðarráðuneytið 1. jan. 2008 og jókst þá samspil greinarinnar við stofnanir og stoðkerfi þess ráðuneytis, ferðaþjónustureikningar Hagstofunnar voru gefnir út í fyrsta sinn 10. október 2008 og Íslandsstofa tók til starfa 1. júlí 2010 sem tók við markaðshlutverki Ferðamálastofu á erlendum vettvangi.

Stýrihópur var myndaður í apríl 2010 og stefnt er að því að hann ljúki störfum í nóvember 2010. Ferðamálaráð er bakland stýrihópsins. Í stýrihópnum eru Ólöf Ýrr Atladóttir, formaður, Helga Haraldsdóttir, Erna Hauksdóttir og Svanhildur Konráðsdóttir. Starfsmaður stýrihópsins er Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóri á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Stefnt er að verklokum við ferðamálaáætlun í lok október og eru þeir sem koma vilja ábendingum á framfæri vinsamlega beðnir að senda þær á netfangið sirry@nmi.is fyrir 10. október nk.

This entry was posted in Framtíðarsýn. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s