Fyrir Alþingi liggur frumvarp um Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða og má finna það hér
Frumvarpið er lagt fram af Iðnaðarráðherra og er, eins og segir í texta frumvarpsins ætlað að, skal með stofnun Framkvæmdasjóðs Ferðamannastaða stuðlað að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.